Tuesday, October 24, 2006

Prófin

Ég er á fullu í prófum núna, og það gengur bara rosalega vel held ég. Ég er búin að gera náttúrulega förðun og módelið mitt var Hafrún mega beib. Ég var mjög ánægð með útkomuna og hlakka mikið til að fá að sjá hvernig þetta lítur út á mynd. Svo var ég með brúðarförðun í dag, og Jóna Kristín ungfrú Reykjavík var módelið mitt. Ég var ógeðslega ánægð með útkomuna, myndirnar voru geggjaðar og allt heppnaðist held ég bara mjög vel. Svo á morgun þá er smokey förðun og verður hún Helena fagra módel fyrir mig, verður spennandi að sjá hvernig gengur. Og svo er seinasta prófið á fimmtudaginn, en þá er engin önnur en Silvía Night módel fyrir mig. Ég er frekar spennt að fá að fríka út í því prófi og gera hana crazy. Verður ótrúlega gaman að sjá útkomuna úr þessum prófum þegar við fáum myndirnar.

En annars er lítið að frétta, Birta Laufey er lasin og hefur það ekkert sérstaklega gott. Gubbaði í gær og er ´buin að vera með bullandi hita í dag greyið. Ég vona að þetta verði búið um helgina, því að við ætlum að hafa það svo gott þá mæðgurnar.

En hér eru nokkrar myndir af henni dúllunni, ég kann ekki að setja inn myndir á hennar blogg, þannig að þær verða að koma hér inn til að byrja með.


Birta Laufey í keilu

Benjamín og Birta að velja sér kúlu.

Hún er einbeitt litla gullið mitt.


Og það var FELLAAAAAAA!!!!!

Monday, October 16, 2006

ég er crazyyyyy!!!!!!!!!

Var að gera tilboð í íbúð......

Þetta er íbúðin sem er efst á þessarri síðu "nýjustu eignir á skrá" eða eitthvað svoleiðis. Arnarhraun 20.

hihihihihihi..........
stress fiðrildi í mallakút!!!!!!

Saturday, October 14, 2006

Skólinn og lífið

Það gengur alveg rosalega vel í skólanum hjá mér og það styttist í prófin. 2 vikur eftir af skólanum sjálfum, í næstu viku er verkefna vika sem er æfing fyrir prófin sem eru svo í þarnæstu viku. Ég verð nú að viðurkenna að ég er komin með nettann prófkvíða, enda er maður svona að reyna að skipuleggja allt úber vel. Ég er amk búin að redda mér módelum og þau eru sko ekki af verri endanum. Allar vön módel, já eða amk vanar því að vera fyrir framan myndavél. Þetta er búið að vera alveg ótrúlega gaman og skemmtilegur tími í skólanum, og tíminn hefur gjörsamlega flogið áfram . En samt verður líka gott þegar þetta klárast, það þýðir, meiri tími fyrir dóttur mína. Guððð hvað ég hef saknað hennar á þessum tíma.

Hún er einmitt hjá mér þessa helgina og við erum búnar að hafa það svo yndislegt saman. Fórum í gær að skoða íbúð sem ég er að spá í að kaupa mér, fórum í íþróttaskólann í morgun og erum búnar að leika okkur í allan dag og hafa það alveg sjúklega gott. Við ætlum einmitt að kíkja aftur á íbúðina á morgun og taka pabba með, hann veit allt um svona þar sem að hann er húsasmiðameistari, við erum að tala um að kallinn gengur um og bankar í veggi, svo smámunasamur er hann. Sem er náttúrulega bara gott þegar maður er í íbúðarhugleiðingum á annað borð.

En aftur að make up-i. Ég er búin að fara í 3 verkefni. Það fyrsta var verkefni með Sóleyju sem er kennarinn minn, en við fórum að gera make up fyrir stuttmynd, ég var eiginlega hennar aðstoðarmaður og endaði svo á því að leika í myndinni eftir að við höfðum klárað make up-ið. Frekar fyndið allt saman og alveg rosalega gaman og góð reynsla. Svo í verkefni nr 2 þá var ég, ásamt 4 öðrum skvísum úr skólanum, módel fyrir Sóleyju. Hún s.s málaði okkur allar, gerði hár og svona. Það var fyrir áramótapartý Oliver og verður mjööög gaman að sjá þegar myndin verður byrt í fjölmiðlum landsins, hvort að e-r þekki mig á myndinni. En við áttum að vera mjöög svo ölvaðar á henni og verð ég að segja, að myndin er hillarious. En verkefni nr 3, var eiginlega mitt fyrsta verkefni sem make up artist. Ég fór ein í verkefnið, og það var fyrir stuttmynd. Ég átti að sjá um make up fyrir þessa stuttmynd á þeim 2 leikurum sem léku í henni, en ég veit ekki hvort ég má segja nöfnin þeirra hér eða hvort ég má byrta myndir strax, en þau eru amk mjög vel þekkt. Það gekk alveg ótrúlega vel og ég var mjög ánægð með mig. Þannig að þetta gengur allt saman vel og ég er að fíla mig í ræmur í þessu djobbi. Spurning hvort að maður fari að skipta um starfsvettvang ;)

Hér eru nokkrar myndir úr skólanum sem ég hef verið að gera:


Náttúruleg brúðarförðun á Söru.


Sara með smokey


sama

og svo ein í lokin af mér, þar sem kennarinn var að gera sýniförðun á mér. Þetta var förðun frá the 30´s.


Jæja er farin í háttinn, hendi inn myndum af Birtu og fleiru við fyrsta tækifæri.

Hafdís.

Friday, October 13, 2006

Ég á fallegasta barn Í HEIMI............

Já hún dóttir mín er heldur betur það besta sem ég á og ég verð nú að segja að ég er frekar stolt af því að hafa eignast svona yndislegt barn eins og hún er.

Hér eru nokkrar myndir af gullinu mínu.