Friday, September 29, 2006

Eitthvað til að hugsa um....

Dag einn var sérfræðingur í tímaskipulagningu að tala fyrir framan hóp viðskiptafræðinema. Til að koma meiningu sinni til skila, þá notaði hann sýnikennslu sem nemendurnir gleyma líklega aldrei. Þar sem hann stóð fyrir framan þennan hóp af metnaðarfullu fólki, þá sagði hann: "Jæja, þá skulum við hafa próf".

Hann tók 5 lítra krukku með stóru víðu opi og setti á borðið fyrir framan sig. Svo tók hann 10 hnefastóra steina og varfærnislega kom hann þeim fyrir í krukkunni, einn af einum. Þegar krukkan var full og ekki hægt að koma fleiri steinum í hana, þá spurði hann: "Er krukkan full?" Allir í bekknum svöruðu: "Já!" "Jæja", sagði hann. Hann teygði sig undir borðið og tók upp fötu með möl. Því næst sturtaði hann smá möl í krukkuna og hristi hana um leið sem orsakaði það að mölin komst niður í holrýmið á milli stóru steinanna. Svo spurði hann hópinn aftur: "Er krukkan full?" Í þetta sinn grunaði nemana hvað hann var að fara. "Sennilega ekki" svaraði einn þeirra. "Gott" svaraði sérfræðingurinn.

Hann teygði sig nú undir borðið og tók upp fötu af sandi. Hann helti úr henni í krukkuna og sandurinn rann í öll holrýmin sem eftir voru milli malarinnar og stóru steinanna. Enn spurði hann: "Er krukkan full?" "Nei", æptu nemendurnir. Aftur svarði hann "gott". Hann tók því næst könnu af vatni og hellti í krukkuna þar til hún var alveg full. Svo leit hann á bekkinn og spurði: "Hver er tilgangurinn með þessari sýnikennslu?"Einn uppveðraður nemandi rétti upp höndina og sagði:
"Tilgangurinn er að sýna, að það er sama hversu full dagskráin er hjá þér, ef þú virkilega reynir... þá getur þú alltaf bætt við fleiri hlutum!". "Nei" svaraði sérfræðingurinn. "Það er ekki það sem þetta snýst um. Sannleikurinn sem þetta dæmi kennir okkur er þessi: Ef þú setur ekki stóru steinana í fyrst þá kemur þú heim aldrei fyrir".


Hverjir eru stóru steinarnir í þínu lífi?
Börnin þín?
Fólkið sem þú elskar?
Menntun þín?
Draumarnir þínir?
Verðug málefni?
Að kenna eða leiðbeina öðrum?
Gera það sem þér þykir skemmtilegt?
Tími fyrir sjálfa þig?
Heilsa þín?
Maki þinn?
Mundu að setja stóru steinana í fyrst eða þú munt aldrei koma þeim fyrir.
EF þú veltir þér uppúr litlu hlutunum ( mölin, sandurinn, vatnið ) þá fyllir þú líf þitt með litlum hlutum sem skipta í raun ekki máli.
Þú munt aldrei hafa þann tíma sem þú þarft til að eyða í stóru mikilvægu hlutina í lífi þínu ( stóru steinarnir ).

Sem sagt í kvöld eða í fyrramálið, þegar að þú hugsar um þessa stuttu sögu, spurði þig þá þessari spurningu...
"Hverjir eru stóru steinarnir í mínu lífi?"
Settu þá svo fyrst í krukkuna......

No comments: