Tuesday, May 01, 2007

nýtt blogg kannskiii

Svolítið mikið langt síðan, ætli e-r skoði þetta ennþá????

Látum reyna á þetta, bara að svara þessu í commentin.


Miðnafnið þitt:
Aldur:
Myndiru segja að ég væri Dirty or Clean:
Þekkjumst við persónulega?
Hver er tilgangurinn með lífinu?
Myndir þú bakka mig upp í slagsmálum?

Myndir þú þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
Besta minningin þín um okkur?
Myndir þú gefa mér nýra?
Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
Getum við hist og bakað köku?
Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
Talaru eða hefuru talað illa um mig?
Finnst þér ég góð manneskja?
Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
Finnst þér ég aðlaðandi?
Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

Thursday, March 08, 2007

Hafnarfjörður v.s Alcan

ég veit ekki með ykkur, en ég vil ekki sjá þetta álver í Straumsvík.

hér eru rökin, allir að kinna sér þetta og kjósa.

Hér eru helstu ástæður fyrir því að við segjum nei við stækkun í Straumsvík:

  • Alcan í Straumsvík verður eftir stækkun stærsta álver í Evrópu og óljóst er hversu mikið fyrirtækið mun stækka til viðbótar þegar gamla verksmiðjan verður endurnýjuð.
  • Mengun frá álverinu myndi aukast verulega við stækkun og losun gróðurhúsaloftegunda myndi verða jafn mikil í Straumsvík og af öllum samgöngum á Íslandi.
  • Stækkun álversins í Straumsvík þýðir lakari loftgæði í Hafnarfirði. Mengunarlosun á sólahring verður eftir stækkun: 2.000 tonn af gróðurhúsalofttegundum, 9,3 tonn af brennisteini, eitt tonn af svifryki, og 700kg af flúor. Þessi mengun skiptir Hafnfirðinga miklu máli þá 40-50 daga á ári sem vindáttin dreifir menguninni beint yfir bæinn.

  • Nú þegar liggja fyrir áætlanir einkaaðila um hafnfirska íbúabyggð fyrir vestan Straumsvík og innan tíðar verður bærinn farinn að teygja sig í vestur með ströndinni. Við teljum að risaálver eigi alls ekki heima í þéttbýli og alls ekki á framtíðarbyggingalandi Hafnarfjarðarbæjar.
    Fulltrúi Alcan lýsti því yfir á dögunum að ef ekki væri álver í Straumsvík í dag, kæmi sú staðsetning ekki til greina fyrir nýtt álver sökum staðsetningar í þéttbýli. Við erum honum sammála.
  • Stækkun í Straumsvík mun þýða verulega sjónmengun á álverslóðinni sjálfri sem verður eftir stækkun jafn breið og hún er löng í dag.
  • Verði af stækkun munu stærstu línumannvirki Íslandssögunar vera lögð ofanjarðar í gegnum útivistarsvæði Hafnfirðinga sunnan Helgafells sem og í gegnum átta sveitafélög á suðvestur- og suðurlandi. Línumannvirkin munu hafa í för með sér verulega sjónmengun í upplandi höfuðborgarsvæðisins og í sveitum landsins.
  • Alcan í Straumsvík þarf í framleiðslu sína jafn mikið rafmagn og öll höfuðborgin með allri sinni íbúa- og atvinnubyggð.
  • Samþykki Hafnfirðingar stækkun í Straumsvík munu þrjár virkjanir í Þjórsár verða settar í framkvæmd þrátt fyrir andstöðu íbúa á svæðinu. Með því að segja nei við stækkun leggja Hafnfirðingar mikilvægt lóð á vogaskálarnar til verndunar íslenskrar náttúru.
  • Þegar talað er um auknar tekjur Hafnfirðinga af álverinu við stækkun er horft fram hjá þeirri staðreynd að tekjurnar munu aukast umtalsvert án stækkunar á næstu árum. Fyrir dyrum standa skattalagabreytingar sem eru óháðar stækkun og fyrirframgreiðslur á hafnargjöldum renna út. Jafnframt hefur ekki verið reiknað út hvaða aðrar mögulegar tekjur Hafnarfjarðarbær getur haft af svæðinu ef ekki verður af stækkun. Því ber líka að halda til haga að við skattalagabreytingarnar lækka heildarútgjöld Alcan til íslensks samfélags þó svo hlutur Hafnarfjarðar aukist til muna.
  • Þegar talað er um auknar tekjur af álverinu fyrir Hafnfirðinga þarf að kynna líka hvaða áhrif þreföld stækkunar mun hafa á fasteignaverð á Völlum, í Áslandi og á Holtinu. Það hefur heldur ekki verið kynnt hvað skuldir heimilanna munu aukast mikið vegna þenslu á framkvæmdatíma og hvaða önnur ruðningsáhrif stækkunin mun hafa í Hafnarfirði á framkvæmdatímanum og í framtíðinni.
  • Það er mikill misskilningur að á krepputímum bíði störf eftir atvinnulausum Hafnfirðingum í Straumsvík. Vegna þenslu á framkvæmdatíma er ekki hægt að gera ráð fyrir atvinnulausum Hafnfirðingum sem ganga í ný störf í stækkuðu álveri. Þeir starfsmenn sem ráðnir verða annarstaðar frá í nýtt álver starfa þar áfram komi til samdráttarskeiðs í Hafnarfirði.
    Það er ánægjuefni að Alcan hefur stutt íþrótta- og æskulýðsstarf í Hafnarfirði undanfarin ár. Það er hinsvegar mikill misskilningur að án Alcan hefði íþrótta- og æskulýðsstarf í bænum þróast með öðrum hætti. Í fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir síðasta ár var gert ráð fyrir 1.155 milljónum til þessa málaflokks og framlag (auglýsingasamningur) Alcan á síðasta ári var 5 milljónir eða 0,4% af heildarútgjöldum bæjarins til málaflokksins. (heimild: www.hafnarfjordur.is)
  • Því hefur verið haldið fram að hvergi sé hægt að framleiða ál á eins vistvænan hátt og á Íslandi. Staðreyndin er sú að rúmlega helmingur (55%) allrar álframleiðslu í heiminum er framleiddur með endurnýjanlegum orkugjöfum og því fráleitt að halda því fram að á íslendingum hvíli einhverjar skyldur í þessum efnum. Endurnýjanlega orkugjafa eins og á Íslandi er að finna t.d. í Rússlandi, Afríku, suður- og norður Ameríku.
  • Í dag starfa 216 Hafnfirðingar i álverinu í Straumsvík, fyrirtækið er í mjög góðum rekstri og það er ekkert í kortunum sem bendir til þess að fyrirtækið fari og loki á næstu árum. Á heimasíðu Alcan segir: ,,Engar áætlanir eru uppi um lokun álversins ef ekki kemur til stækkunar, enda gengur verksmiðjan vel og árangurinn er góður, bæði á tæknilegum mælikvörðum og í umhverfismálum.” (heimild: www.alcan.is)

Það eru kaflaskil á sjóndeildarhringnum hvað varðar álver í Hafnarfirði. Ákvarðanir sem teknar voru fyrir 40 árum geta ekki verið grundvöllur fyrir þær ákvarðanir sem við tökum í dag. Við stöndum frammi fyrir nýrri ákvörðun sem hefur áhrif næstu 50 til 60 árin í bænum okkar. Við í Sól í Straumi hvetjum Hafnfirðinga til að kynna sér stækkunarmálið. Þetta er stærsta ákvörðun sem Hafnfirðingar hafa nokkru sinni tekið og snýst um framtíð bæjarins.
Sól í Straumi

tékkið á www.solistraumi.org



Friday, February 16, 2007

hahahahahahah

Bruunhildeee, þetta er bara of fyndið. Hvenær kemur þessi snilld út á DVD???

Tuesday, January 30, 2007

hahahahahaha

þetta er fyndið..

Your Dominant Intelligence is Bodily-Kinesthetic Intelligence
You are naturally athletic and coordinated, good at making your mind and body work together.Sports are fun and easy for you, especially those requiring good hand - eye coordination.There's also a good chance you're a great dancer, or good at expressing yourself through body language.You learn best by doing, and you feel like you've always got to be moving (even if it's just your hands).
You would make a good athlete, physical education teaches, dancer, actor, firefighter, or artisan.


Ég er stressuð fyrir Dana leikinn í kvöld, einhvernveginn finnst mér við alltaf hafa verið í vandræðum með Dani. Ef við vinnum, þá spái ég okkur 3 sæti.

ÁFRAM ÍSLAND.

Thursday, January 25, 2007

12 hlutir sem þú vildir EKKI vita.

1) Eftir eins tíma sundferð hefur þú komist í snertingu við hálfan lítra af þvagi.

2) Á meðaldegi kemst þú í óbeina snertingu við 15 tippi, t.d. við að taka í hurðarhúna.

3) Árleg neysla meðalmanneskju á skyndibitamat inniheldur 12 kynfærahár.

4) Á einu ári gleypir þú 14 skordýr í svefni.

5) Á einu ári heilsar þú með handabandi 11 konum sem hafa nýlega fróað sér og gleymt að þvo sér um hendurnar.

6) Á einu ári heilsar þú með handabandi 6 körlum sem hafa nýlega fróað sér og gleymt að þvo sér um hendurnar.

7) Flestir karlmenn þvo alls ekkert á sér hendurnar eftir að hafa verið á klósettinu. Veltu því fyrir þér næst þegar þú ert á barnum og færð þér hnetur úr skálinni á barborðinu.

8)Í meðalbrúðkaupi hefur þú hundrað möguleika á að smitast af frunsu frá einum gestanna.

9) Þú andar daglega að þér hálfum lítra af endaþarmsgasi frá öðrum.

10) Tannlæknar telja að tannburstar verði að vera í a.m.k. tveggja metra fjarlægð frá klósettskálinni til að sýklar í loftinu frá skálinni festist ekki á burstunum.

11) Þú eyðir sex mánuðum lífs þíns á klósettinu.

12) Ef þú nagar neglurnar innbyrðirðu meira magn sýkla en ef þú sleiktir hreina klósettskál.

JÁ´´AÁÁÁ

ÍSLAND ER SVO AÐ GERA GÓÐA HLUTI....

þetta er geðveikt, ég hef aldrei verið eins svartsýn fyrir leik eins og á móti Frökkum, en ég þurfti svo sannarlega að éta það ofan í mig og það gerði ég sko með glöðu geði. Ég er að rifna úr stolti af þeim, ég get ekki beðið að horfa á rest.

ÁFRAM ÍSLAND.

Thursday, January 11, 2007

myndir frá Stokhólmi.

við í bílnum eftir verkefnið


Jenný að mála rokkarann.
Ein af þeim sem ég málaði og gerði hár á.
Ég að gera make up og hár.




draslið mitt.


Við úti að borða, drukkum svoldið marga cokctaila þetta kvöld. Ógeðslega gaman. Ég og Jenný







Ég hress.






Ég, Jenný, Sóley og Tim á East að borða. Hrannsi tók myndina.






Ég og Sóley kátar eftir verkefnið. Vorum svo þreyttar að við urðum fullar af þessum eina bjór. MONGO´S.





ohhh ég er svo fulll. hahahahah














Við Jenný að gera okkur klárar fyrir átökin, unnum frá 12-23.













Það var "íslendinga"partý á kollegi þarna, og það var hattaþema. Hrannar með flotta hattinn sinn:D










Við Hrannsi á Blue Moon í góðum fíling. Þetta er ógeðslega fyndin mynd, við dönsuðum ALLT kvöldið. Hrikalega gaman.












Svo skelltum við Hrannar okkur á Jensen´s böffhus og fengum okkur Spearribs, og svona RIIIIIIISA bjóra sem ég var ekkert smá ánægð með.













Við Jenný in da house, á East að djamma. hahaha

















Ég og Sóley að bíða eftir fólki i make up herberginu.
















Í lestinni á leiðinni á East að hitta Sóleyju, Jenný og Tim. Maður er náttúrulega stór g
læsilegur.









Wednesday, January 10, 2007

Árið sem leið í grófum dráttum.

Já ég ætlaði alltaf að koma með svona 2006 yfirlit, og hér kemur það. Þetta ár var frekar viðburðaríkt hjá mér, bæði gott og slæmt. Hér kemur það helsta.

  • á árinu hætti ég og byrjaði aftur í boltanum
  • ég varð einstök móðir, sem mér finnst vera betra orð en einstæð.
  • ég tók sjálfa mig gjörsamelga í gegn
  • fór í make up nám í EMM school of make up, sem er það besta sem ég hef gert í langann tíma. Eftir að hafa langað þetta síðan ég var krakki, lét ég loksins verða af því
  • ég eignaðist nýja vini
  • ég hætti í dönskunni í HÍ eftir árs nám, LEIÐINLEGGGTTTTT
  • fór 2x til útlanda, kíkti á Ellu Möggu í DK. Fór út með tóma ferðatösku og gat svo varla lokað henni þegar ég var að pakka. Svo fór ég til Stokhólms í byrjun desember í heimsókn til Hrannars og að vinna verkefni fyrir sænska sjónvarpið með Sóley og Jenný.
  • keypti mér íbúð
  • flutti inn til mömmu og pabba
  • byrjaði að vinna í KB banka
  • skipti yfir í FH
  • málið mitt vegna bílslyssins kláraðist, finally
  • hélt upp á 25 ára afmælið mitt á pravda sem var alveg hreint meiriháttar gaman
  • hélt suprise afmæli fyrir Óla
  • hélt upp á 2 ára afmæli dóttur minnar
  • dóttir mín byrjaði í leikskóla

á þessu ári fann ég líka sjálfa mig aftur, lærði betur inn á mig og lagfærði það hjá sjálfri mér sem ég var ekki ánægð með. Eftir þetta ár tel ég mig vera sterkari og meðvitaðari um sjálfa mig en ég var. Mér finnst ég hafa betri stjórn á mér og ég held líka að ég kunni betur að meta það sem ég hef og forgangsraða eftir því sem mér finnst hlutirnir vera mikilvægir. Ég fór líka að búa mér til tíma fyrir það sem mig langaði til að gera.

Þetta ár var fullt af skemmtilegum og miður skemmtilegum atburðum sem ég lærði helling af.

Þetta var bara svona stiklað á stóru, ef ég man eitthvað meira þá bæti ég því inn.

En ég blogga meira síðar, þetta er orðið full alvarlegt hérna.

Thursday, January 04, 2007

jahérna hér




Nýjasta parið í bransanum skv. orði götunnar, Magni á s.s að vera búinn að sparka konunni og byrjaður með Dillönu. Ef þetta er rétt, þá hafði völvan rétt fyrir sér. En hún sagði einmitt að frægðarstjarna Magna myndi hrapa á þessu ári.

ÉG held að öll þjóðin sjái eftir því að hafa vakað heilu næturnar til að kjósa hann ef að þetta er málið.


Svo í lokin, ég get tekið gleði mína á ný. Tjékk it

Farin að sofa.

Tuesday, January 02, 2007

hahaha, so true held ég...

hvað segið þið hin, er ég svona?

Your Life Path Number is 6

Your purpose in life is to help others

You are very compassionate, and you offer comfort to those around you.
It pains you to see other people hurting, and you do all in your power to help them.
You take on responsibility, and don't mind personal sacrifice. You are the ultimate giver.

In love, you offer warmth and protection to your partner.

You often give too much of yourself, and you rarely put your own needs first.
Emotions tend to rule your decisions too much, especially when it comes to love.
And while taking care of people is great, make sure to give them room to grow on their own.

Wednesday, December 27, 2006

Jahérna hér.

Alcan bara ekkert að kaupa atkvæði Hafnarfjarðarbúa, nei nei einmitt.....

Það er ekki hægt að gera þetta augljósara, lesið þetta hér...

Það er sko eins gott að það takist ekki hjá þeim.

Birta tónlistarkona.

Birta mín fékk rooosalega flottann míkrafón og míkrafónstand í jólagjöf.
Binni frændi hennar frékk trommusett. Hér er framtíðar bandið...






Þau eru fjölhæf þessar elskur.

Ég skrifa seinna um jólin, er veik.

Hafdís.

Monday, December 18, 2006

i act 21,5 years old. .

[x]I know how to make a pot of coffee
[x]I can do my own laundry
[x] I can cook for myself
[x] I actually enjoy intellectual conversations
[/] I think politics are exciting
[ ] My parents and grandparents have better things to say than my friends
Total: 4,5

[ ] I show up for school and or work every day unless I'm sick
[ ] I always carry a pen in my pocket/purse.
[x] I've never gotten a detention
[x] I've watched talk shows to point out the credibility of it all
[x] I know what credibility means without looking it up
[ ] I drink coffee at least once a week
Total: 3

[x] I know how to run the dish washer and or do the dishes.
[ ] I can count to 10 in Spanish.
[/] When I say I'm going to do something I do it.
[x] My parents trust me
[x] I can mow the lawn.
[x] I can make adults laugh without being stupid.
[ ] I remember to water my plants.
[x] I studied when I had to.
[x] I paid attention at school
[x] I remember to feed my pets
Total: 7,5

[x] I can spell experience without looking it up
[x] I clean up my own mess.
[ ] The first thing I do when I wake up is get Diet Pepsi/Coke
[/] I can go to the store without getting something I don't need.
[x] I understand jokes the first time they are said
[x] I can type fast.
Total: 4,5

[x] I have realized that the weather forecast changes every hour.
[x] I can look at someone hot without thinking of sex.
[ ] I have realized that no one will take you seriously unless you
are over the age of 25 and have a job.
[x] I can read a book and actually finish it
total: 3

Now add up all of the x's you have and put "I act __ years old"

og ég sem hef alltaf haldið því fram að ég hagi mér eins og ég sé 18 ára, nohhhh
ætli maður þroskist ekki bara við það að eignast barn, múhahahahaha....

Saturday, December 16, 2006

ÉG Á ÍBÚÐ.....

Já þá er þetta orðið klárt, ég er búin að finna mér íbúð, búin að bjóða í hana og tilboðið hefur verið samþykkt. Ég skrifa svo undir kaupsamninginn á milli jóla og nýárs. Þetta er semsagt á Hjallabraut 23, 3 herbergja íbúð sem er í allt 105 fm, íbúðin sjálf er 90 fm og hún er æði. 2 stofur og svona. Ég er svo glöð með þetta að ég er að springa. Fæ hana afhenta í Febrúar, þá málar maður þetta allt saman og flytur inn. Ég get ekki beðið. Ég hlakka svo tillllllllllll, ohhh þetta er svo yndislegt.

Birta fær að sjálfsögðu sitt herbergi og svo eru svalirnar þannig gerðar að þær eru með glerhýsi yfir þeim, sem ég er að gæla við að hafa sem leikherbergi eða eitthvað, og svo er hurð þaðan út á yfirbyggðar svalir, til suðurs of course.

Nú vantar mig bara innbú, á einhver eitthvað sem ég má annaðhvort fá lánað eða gefins???

En ég blogga meira síðar, er frekar þunn eitthvað og ógeðsleg.

Hafdís.

Wednesday, December 06, 2006

hausverkur....

eg er tunn i dag, hausverkur, aaaaaaiiiiiiiiii.....
eg er i stokkholmi, ohhhhh eg elska tessa borg. gaeti alveg hugsad mer ad bua herna, otrulega falleg borg og thaegileg.

En verkefnid a manudaginn gekk alveg ogedslega vel, framar vonum eiginlega. Vorum ad fra 12 a hadegi til 23 um kvoldid. Oll selebin i svithjod voru tarna, frekar fyndid ad vera ad mala e-r mega seleb og hafa ekki hugmynd um hverjir tetta eru, eg skildi t.d ekkert i tvi ad tad var alltaf verid ad oska einum gaur til hamingju med e-d. Svo for eg ad spurja afhverju og hver tetta vaeri, ta var hann ad vinna idolid a fostudaginn. Hmmmm LUDI.... En eins og eg segi gekk tetta rosalega vel og Jenny og Soley voru rosalega anaegdar med mig, hjukkk... hiihihihi..

eg er buin ad vera roooosalega dugleg ad versla, enda ekki vid odru ad buast tegar eg a i hlut. hihihi, versladi slatta a hana Birtu mina i gaer, eg elska ad versla a hana. keypti hrikalega falleg jolafot a hana i Zoru, aedi sko. Svo er eg audvitad buin ad versla slatta a mig og keypti mer klikkud ljos i ibudina sem eg aetla bradum ad eignast.

Svo erum vid hrannsi buin ad hafa tad rosalega gott, elda godann mat, spjalla og hlaegja og skemmta okkur. eg er audvitad buin ad draga hann med mer i budir og lata hann bera pokana mina, sem hann reyndar bidur um ad gera, hann er svo mikill herramadur tessi elska.

i gaer forum vid ut ad borda a rosalega flottann stad, eg jenny, soley, hrannar og Tim vinur soleyjar (hann er huge tonlistargaur, gerdi t.d plotuna hennar Beyonce og svona dot), eg fekk mer tetta dyrindis sushi, nammmmm. Drukkum heldur marga kokteila og vorum ordin vel hress a tvi, ta serstaklega vid Soley. Bartjonninn daeldi i okkur frium drykkjum og vid audvitad gatum ekkert aftakkad sko, huhummmmm.... Svo faerdum vid okkur a barinn og drukkum ennta fleiri mojito og svona. Ogedslega gaman, en hausverkurinn i dag er ekkert spes. Svo er party a morgun med Jenny, tad er bransa party og allt stora folkid herna (make up artistar, ljosmyndarar, har folk og allur pakkinn) komid saman i party, og Jenny aetlar ad fara ad plogga Disuna sina. Love it....

En tad er buid ad vera yndislegt ad vera herna og hrannar er besti gestgjafi i heimi.... fornadi ser i sofann og allt, hihihihihihi... Erum ad fara a opnunarleik EM kvenna i kvold, mamma reddadi okkur VIP possum tannig ad vid aetlum ad kikja a e-a leiki. Svo a fostudaginn aetlar stebbi vinur hrannsa ad koma og borda med okkur, tykir liklegt ad tad endi i rugli.... sem er ekkert verra.

En eg aetla ad koma mer ut i apotek og kaupa verkjatoflur til ad drepa tennan trommuleikara sem er i hausnum a mer ad spila trommusolo...

Heyrumst seinna.

Thursday, November 30, 2006

Dúfur og hættuleg öryggisbelti....

Það sem drifið hefur á mína daga er svo sem ekki margt, fórum reyndar í sumarbústað um síðustu helgi og það var æðislega gaman. Birta Laufey í essinu sínu og átti hvern gullmolann á eftir öðrum. En þetta var klárlega move helgarinnar,

svo heyrist þarna í lokin, "þetta er svo gott lag"
já hún er snilligur þessi litla skotta, svipurinn á henni er snilld.

En ég er bara búin að vera að vinna undanfarna daga, og auðvitað leika mér við litlu skottuna. Fer svo út á sunnudaginn til Stokhólms, vá hvað ég er spennt. Verður gott að komast í burtu í smá frí, og fá að vinna þetta verkefni sem ég er að fara að gera á mánudaginn. Ég er að fara að mála fullt af dönsurum og eitthvað fólk fyrir þennan þátt. Frekar spennandi, finnst alveg fyndið að það var hringt í Sóley til að kanna hvort að við værum með ofnæmi fyrir einhverju eða hvort við værum grænmetisætur, maður bara fílar sig eins og seleb, ahahahahahahahhah..... En ég ætla að vera duegleg að versla þarna úti, jólagjafir og svo auka gjafir handa mér og mínum. Við Hrannar ætlum kannski að kíkja til Köben í 1 dag, en það er verið að skoða þetta allt saman.

Ég verð að segja frá ógeðslega fyndnum sögum sem við mamma erum búnar að hlægja mjöööög mikið af. Þannig var mál með vexti, að við fórum saman í hádegismat í Hafnarborg í fyrradag, sem er ekki frásögufærandi, nema hvað.. Við sátum og vorum að borða þegar við tökum eftir dúfum sem sitja á götunni og eru eitthvað að hygge sig. Svo sáum við að önnur þeirra lá mjög undarlega á götunni og það helli rigndi. Ég sá ekki betur en að greyið væri vængbrotin þar sem að hún var búin að lyggja í þessarri mjög svo furðulegu stellingu í dágóða stund, þannig að ég ákveð að fara út og bjarga henni, Hafdís bjargvættur mætt á svæðið. Ég stend upp og rýk út, labba að dúfunni og ætlaði að gera mig klára í að taka hana upp og fara með hana til læknis eða eitthvað, en nei, stendur mín ekki bara upp og hleypur í burtu. Þarna stóð ég ógeðslega hissa og rennandi blaut, bjargvættar move-ið mitt úr sögunni, glatað. Ég bilaðist úr hlátri og leit á mömmu sem sat inni í Hafnarborg og borðaði súpuna sína í mestu makindum, svo dó hún úr hlátri líka. Ég staulaðist aftur inn rennandi blaut og með ofurhuga drauminn hruninn, hahahahahahahah ég er hætt að vera dýravinur. Svo settist ég aftur niður og fór að borða súpuna, nema að ég tek eftir að dúfurnar eru aftur komnar í þessar brengluðu stellingar á götunni, heyrðu hvað haldið þið að þær hafi verið að gera??!! ÞÆR VORU Í STURTU, lögðust á hliðina og lyftu vængjunum og létu rigninguna þrífa sig, ég sem hélt að hún væri slösuð... Þetta var kannski svona "had to be there" moment, en mig langaði nú engu að síður að deila þessu með ykkur.


Víst að ég er byrjuð í sögunum þá er ég að spá í að segja frá annarri sem er ógeðslega fyndin. Ég var uppí orkuhúsi hjá Sveinbirni Brands bæklunarsérfræðingi og var að koma fram frá honum, mamma stóð við gluggann og réði sér ekki úr hlátri, hún veinaði og gat ekki talað hún hló svo. Allavega, ég labba að henni og bara "mamma mín er ekki allt í lagi eða?" og hún bendir út um gluggann og fer að reyna að útskýra, en ég auðvitað skildi ekki orð af því sem hún sagði því að hún hló svo mikið. Þannig að ég kíki bara út, og ég bilaðist úr hlátri líka. Þarna úti var maður sem var kominn útúr bílnum sínum og búinn að loka hurðinni, en þá fattaði hann að hann var ennþá í bílbeltinu. Hann stóð þarna og var að berjast við að koma beltinu af sér, en ekkert gekk. Hann stóð þarna og barðist og barðist, æsingurinn í honum var orðinn svo mikill að hann varla stóð í fæturna. HANN FÓR Í ÚLPUNA YFIR BILBELTIÐ OG KOMST ÞESSVEGNA EKKI ÚR ÞVÍ, og var í þokkabót búinn að loka hurðinni á bílnum. Ég held að hann hafi verið í allavega 7 mín að berjast við að ná þessu blessaða belti af sér, svo loksins fattaði hann að beltið væri undir úlpunni, þannig að hann klæddi sig úr henni og náði þá beltinu af sér. Svo bara hélt hann sína leið sæll og glaður yfir að vera laus úr helv.... beltinu. Allar þessar mínútur sem það tók hann að ná sér útúr þessu veseni, grenjuðum við mamma úr hlátri í glugganum á efstu hæð, þetta var sjúklega fyndið.

En ég segi þetta gott
Tjus.

Wednesday, November 22, 2006

Smá svona....

æji það er svo gaman að dunda sér við svona þegar maður hefur ekkert að gera, þessvegna eiga allir að svara þessu í commentunum mínum, af því að það hefur enginn neitt að gera, ekki satt ;)

1. Ef þú þekkir mig ekki og mætir mér einhversstaðar, myndir þú halda að ég væri á lausu eða föstu?
2. Þegar þú hugsar til mín hvaða 5 hluti/atriði dettur þér í hug?
3. Hvernig sérðu þig fyrir mér í hljómsveit?
4. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkar þú mig undir?
5. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
6. Hvað giskaru að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?
7. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
8. Hvernig stráka fíla ég?
9. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
10. Hvað er mest einkennandi við mig?
11. Hvaða búðir elska ég að fara í?
12. Lokaorð til mín?


mér finnst svona gaman...

Tuesday, November 21, 2006

Júróvisjón 2005

Hahahaha var að finna þetta í e-u maili sem ég fékk í fyrra, og þetta er svo fyndið að mig langar að láta þetta inn á bloggið mitt.

"Já Skemmtilegasti hlutinn af eurovision í ár var án efa gullmolarnir hans Gísla Marteins... Hér koma nokkrir..."


""svo þessi veðbanki getur bara tekið þessar spár sínar og
stungið þeim upp í....(löng þögn)...rassvasann á sér!".

"ooo ég var búin að gleyma að Ísland byrjaði á Æ-i".

"Hún er ekkert ógeðslega ljót".

Flytjendur Noregs; "Búningarnir eru svo þröngir að það sést
hverjar trúar þeir eru".

Le Danir fá þrjú stig".

"Já, já. Þær eru eistneskar stelpurnar frá Sviss".

"Hér stígur hún á stokk með lagið Touch my fire eða Komdu
við kvikuna á mér".

Flytjandi Möltu var sver og mikil ung kona og þá segir
Gísli Marteinn; "skyldi þessi fá að ættleiða?".

.."sykurpúði og hunangskoddi"...Um flytjanda Kýpur.

"jæja nú uppfyllti Kýpur eina skilyrðið sem það þurfti að
gera til að fá 12 stig frá Grikklandi en það var að mæta á
svið sem og hann einmitt gerði".

Um verðlaunagripinn. "Þetta er skíragull...þetta er sko
ekki gullið sem ég var að tala um áðan".

Af BLOGGINU hjá Gísla Marteini á rúv; "Okkur finnst mjög
fyndið að þetta heiti Kievsky, því þegar við erum að
þykjast tala úkraínsku, endum við allt á -skí endingunni.
Einn hambúrginskí og kókskí takk. Takkskí. Og það eru tveir
veitingastaðir á hótelinu. Getiði einu sinni hvað þeir
heita. Evrópeskí og Slóvenskí. Það er náttúrulega
brilljantskí, einsog Vala Matt myndi segja ef hún væri
úkraínskí"."


hihihih, mér finnst þetta helvíti skondið verð ég bara að segja.

vinna, það er eitthvað minna. Éta, það er það sem þeir geta.

Skellti mér í ræktina í gærkvöldi, lyfti á efri búk, gerði æfingarnar mínar fyrir bakið og gerði held ég of mikið af magaæfingum. Ég verð að viðurkenna að ég er með svolitla strengi í dag, þá sérstaklega í mallakút, missti mig aðeins í medicin boltanum og gerði hundruði magaæfinga fyrir hliðarvöðvana. Á því erfitt með hlátur í dag, sem er svolítið slæmt, því að mér leiðist ekkert að hlægja.

En helgin var nokkuð góð, skellti mér ásamt fríðu föruneyti á Sykurmolana í Höllinni. Við byrjuðum á partýi hjá Zilly Magg (Buttercup) og sátum þar og drukkum ýmist bjór, hvítt eða rautt, sem rann að vanda vel niður í mannskapinn. Um 21 fórum við að hugsa okkur til hreyfings og vorum komnar á tónleikana rétt rúmlega 21. Við auðvitað byrjuðum á að kíkja á barinn til að smakka hvítvínið sem boðið var uppá, glasið kostaði ekki nema milljón, þannig að við keyptum nóg af því. Sumir gengu aðeins lengra og fylltu veskið sitt af bjór (sem var keyptur dýrum dómi á barnum) og var sötrað nánast alla tónleikana. Sykurmolarnir voru ótrúlega góðir og ég skemmti mér svo hrikalega vel, Einar Örn er náttúrulega snillingur, dissandi Árna Johnsen alla tónleikana, hahahahahahaha. En við skvísurnar dönsuðum og sungum úr okkur innyflin og höfðum það ekkert smá gott. Svo eftir tónleikana fórum við í eftirpartýið sem FL group var með í salnum í Höllinni, og þar var sko allt fljótandi í áfengi og hrikalega góður matur fyrir alla. Svo var einhver hljómsveit sem að hélt uppi stuðinu og ég verð bara að segja, þetta var helvíti fínt partý. Vorum þarna til að ganga 2, en þá fékk ég Helenu til að skutla mér heim eftir að hún skutlaði hinu liðinu í bæinn.



Á laugardaginn var matur upp í kaplakrika og svo tvítugsafmæli hjá Líney. Þaðan fór ég í bæinn, kíkti á Oliver og í fyrsta sinn ever fannst mér GAMAN þar, ég dansaði og dansaði og skemmti mér ógó vel. Svo kíkti ég á Kaffibarinn og þaðan á Sirkus. Very nice kvöld, versta var að maður þurfti að hafa sig allann við að komast áfram í þessum hellings snjó sem hafði komið um nóttina, sem betur fór var ég í stígvélum. Ógó mikið stuð.

Sunnudagurinn fór að mestu í þynnku og sofelsi. Svaf til 14, fór á handboltaleik og svo út að leika í snjónum með Petru frænku. Mig langaði mest að hringja í alla vini mína og safna í snjóstríð, ohhhh það er svo gaman, allavega í minningunni.....

En jæja, ég ætla að fara að gera eitthvað að viti.

Lifið í lukku..

Thursday, November 16, 2006

Freðýsur.

Já ég veit ekki hvað þetta lið þarna uppá slysó er að bryðja eða reykja, en eitt er þó víst, þetta er ekki að gera þeim gott. Nei ég fór s.s til Sveinbjarnar í gær sem er fremsti bæklunarsérfræðingur landsins til að láta meta hásinina á mér betur. Og hvað haldið þið að hafi komið í ljós...... ÉG ER MEÐ RIFINN VÖÐVA Í KÁLFANUM og hásinin er ekki rifin. Hahahahahahaha, ég fer aldrei aftur á slysó, það er á tæru. Hvernig er hægt að rugla þessu tvennu saman, svoldið mikill munur þarna á. En ég var mjög fegin, þetta þýðir engin aðgerð og 4 mánuðir í endurhæfingu í stað 12 mánaða. Þetta er alveg magnað, ég er búin að hlægja frekar mikið af þessu, ég skil hreinlega ekki hvernig það er hægt að ruglast á þessu tvennu.

En Birta mín er komin með hlaupabólu, litla skottið. Bólur að koma útum allann kropp. Hún er nú samt merkilega hress og klægjar ekkert. En ég geri nú ráð fyrir að það verði fleiri bólur og að kláðinn eigi eftir að koma, ég er allavega undirbúin þar sem að ég fjárfesti í kláðastillandi kremi áðan. Æji ég vona bara að henni eigi eftir að líða vel á meðan þetta gengur yfir.

En ég er að fara til Svíþjóðar 3 des, vívívíví. Byrja á að fara í verkefni þar með Sóley make up artista. Erum að gera make up fyrir live sjónvarpsþátt sem er eitthvað huge i Sverige. Hlakka massíft til, þetta er ógeðslega spennandi og frábært tækifæri og reynsla fyrir mig. Svoooooo er ég að fara í heimsókn til Hrannars míns í VIKU, jíhaaaaaa. Það verður sko ýmislegt brallað og að sjálfsögðu verslaðar jólagjafirnar í ár. Ég get ekki beðið, verður líka gaman að hanga með Sóley og Jenny í Stokkhólmi, þær þekkja borgina út í gegn og allar heitustu make up búðirnar að sjálfsögðu líka. Crazyyy, hjólin eru heldur betur farin að rúlla í þessu make up-i hjá mér.

En jæja, ætla að halda áfram að vinna. Hahahaha, maður þarf víst að vinna fyrir kaupinu sínu.

Tjus.